föstudagur, ágúst 24, 2007
fimmtudagur, ágúst 23, 2007
Fullkomnun
Ég þekki fullkomið par. Þau eru svo hamingjusöm og góð við hvort annað. Þau fara í löng ferðalög um heiminn og fara út í nám og gera skemmtilega hluti. Þau eru svona “match made in heaven”. Vandamálin þeirra, ef þau voru nokkur, snérust um litla hluti eins og hvort blómavasinn ætti að vera á borðinu eða í gluggakistunni. Í gegnum árin hef ég fylgst með þeim úr fjarlægð og öfundað þau af þessari fullkomnu hamingju, sem ég taldi mig ekki hafa (amk ekki á meðan ég var einhleyp) og óskað þess heitt að ná að komast í þeirra spor.
Ég frétti af þeim um daginn, þau eru enn par. En hann tók allar peningana þeirra í nefið og þau þurftu að byrja alveg frá grunni. Hann er reyndar hættur að taka í nefið í dag en þeir sem þekkja til vita að það er bara eitt skref af óteljandi að hætta...oft eru skrefin sem koma á eftir ekki síður sársaukafull. Mér er hætt að langa í sambandið þeirra...
Þetta kennir manni kannski að meira að segja góðu fullkomnu samböndin hafa sprungur, bresti og brak...

þriðjudagur, ágúst 21, 2007
Hlaup
Þar sem ég er búin að taka upp úr næstum því öllum kössunum og svotil búin að koma öllu fyrir, þá gat ég farið út að hlaupa. Hef lítið sem ekkert hlaupið í sumar...og sumarið teygir sig voða voða langt aftur. Fjölskyldan hefur farið nokkrum sinnum saman en í gær fór ég og yngri sambýlismaðurinn. Upphaflega planið var að fara 10 km (hann hjólar með) en þegar við vorum rúmlega hálfnuð skellir hann þeirri hugmynd fram hvort við ættum ekki að fara 15. Það var til þess að ná að fara yfir brú sem honum þykir voðalega gaman að hjóla yfir.
Hann - eigum við kannski að fara 15?
Ég - tja..(eftir smá umhugsun) ég get það alveg, en þá yrði ég voðalega þreytt og færi hægar en ég er að fara núna...
Hann - (fylgist með mér í smá stund og segir svo með mjög mikilli innlifun og með sannfæringarkrafti) það væri þá MJÖG hægt...
Til að byggja upp sjáflstraust móður sinnar enn meira bætti hann við þegar ég kláraði síðustu metrana:
Hann - ertu mjög þreytt?
Ég - jahh..ég er eiginlega alveg búin á því...
Hann - ég gæti sko alveg farið 15 km til viðbótar..

mánudagur, ágúst 13, 2007
Þjálfari maraþondrengs handtekinn fyrir pyntingar

Þjálfari fimm ára gamals indversks maraþonhlaupara var handtekinn í morgun eftir að drengurinn sakaði hann um pyntingar. Móðir drengsins kærði þjálfarann til lögreglu í borginni Bhubhneswar í austurhluta Indlands en drengurinn, sem heitir Budhia Singh, sagði við sjónvarpsstöðvar að þjálfarinn hefði lokað hann matarlausan inni í herbergi og barið sig með heitri járnstöng.
Budhia Singh vakti heimsathygli í maí í fyrra þegar hann hljóp 65 km vegalengd í fylgd 300 indverskra hermanna en hné niður rétt áður en hann komst í endamarkið. Barnaverndaryfirvöld í Orissafylki bönnuðu drengnum að hlaupa langhlaup eftir að fréttir bárust um að hann væri vannærður og undir miklu líkamlegu og andlegu álagi.
Biranchi Das, þjálfari drengsins, hélt því hins vegar fram að heilsa drengsins væri í besta lagi og hann væri þjóðargersemi. Þess vegna krafðist hann þess að Orissafylki greiddi sér 2000 dali á mánuði vegna uppihald drengsins.
Budhia fæddist í fátækrahverfi í borginni Bhubaneswar. Þegar hann var ársgamall lést faðir hans og móðirin seldi drenginn fyrir jafnvirði 1500 króna. Biranchi Das, sem starfaði sem júdóþjálfari í borginni, ættleiddi drenginn og uppgötvaði síðar að hann bjó yfir óvenju miklu þoli.
„Hann kom til mín þegar hann var þriggja ára. Einn dag skipaði ég honum í refsingarskyni að hlaupa og gleymdi honum svo. Þegar ég sá hann sex tímum síðar var hann enn á hlaupum," var haft eftir Das á síðasta ári.
tekið af mbl.is
...þarf maður að bæta einhverju við?...
miðvikudagur, ágúst 08, 2007
Miklu betri en þessar gömlu
Ég fór í sund um daginn, sem er svosem ekki frásögum færandi...nei ætli sé ekki best að byrja á byrjuninni: ég fór í sund um daginn, ekki þann dag sem ég byrjaði að segja frá, heldur viku fyrr. Ég fór aldrei þessu vant ofan í laugina og synti heila 200metra. Ég var mjög ánægð með mig. Ekki endilega af því að ég hafði afrekað að synda alla þessa metra, heldur frekar vegna þess að ég synti yfir höfuð. Ég hitti svo tvær vinkonur mínar í lauginni og fór að monta mig af þessu afreki mínu. Önnur var mjög stolt af mér og sagðist einmitt hafa synt svipaða vegalengd um daginn...
...hin aftur á mót fór að hlæja og benti okkur á að meira að segja gömlu konurnar syntu 500 metra...
Allt í einu var ég ekki svo stolt yfir þessu framtaki mínu (kannski fyrst og fremst út af því að við vorum í heita pottinum og ALLIR voru að hlusta) en ég hélt þó hetjulega haus...
...svo fór ég í sund um daginn (þarna þar sem ég byrjaði söguna upphaflega) og sagði við stóra sambýlismanninn að ég ætlaði að byrja á því að synda. Og ég synti og ég synti og ég synti. Ég fór eiginlega til Vestmannaeyja og til baka, svo mikið synti ég. Alveg heila 600 METRA og eins og það væri ekki nóg þá synti ég af þeim 175 metra í skriðsundi. Og eins og það væri ekki nóg, þá klessti ég ekki á neinn, drukknaði aldrei og synti þó nokkuð beint. Ég er rosaleg!!!
Þremur dögum seinna eru strengirnir alveg að fara og ég get rétt bráðum farið að lyfta glösum og klæða mig sjálf

þriðjudagur, ágúst 07, 2007
Gordon Brown
Þegar ég frétti að Gordon Brown væri nýji forstætisráðherra Bretlands, varð ég skemmtilega hissa. Mér finnst Gordon Brown nefninlega vera konu nafn. Núna veit ég betur og hef oft séð mynd af Mr Brown. En það breytir því ekki að þegar ég hugsa um hann sé ég hann fyrir mér í bleiku dressi...
ætli ég viti eitthvað sem hann er ekki búinn að viðurkenna fyrir umheiminum???

föstudagur, ágúst 03, 2007
Dagur 3
Dagurinn í gær gekk bara nokkuð vel. Mér tókst ekki bara að hugsa jákvætt heldur líka að snúa neikvæðum hugsunum í jákvæðar. (ok, kannski ekki oft en það tókst amk einu sinni´).
Á ákveðnum tímapunkti (erfiðum) tókst mér að loka alveg á neikvæðni, til að ath hvort það kæmi ekki í veg fyrir að viðkvæmt augnablik færi út um þúfur...og það tókst.
Fór líka út að hlaupa í gær. Eða ætti ég að segja skokka. Mér líður í raun eins og ég eigi að segja "jogga" eins og heldri mennirnir gera, því það var eiginlega það sem ég var að gera. Ég fór ekki langt, um 7 km, en það var erfitt. Ég er komin með markmið: koma mér í gott form.
Ég ætla að stinga upp á því við yngri sambýlismanninn að fara aftur í nammibindindi, jafnvel fram í desember - með einum "svindldegi" í mánuði. Svo þegar það er búið fáum við verðlaun. Ég fæ kannski skó og hann getur fengið tölvuleik eða bíómynd nú eða skó...

fimmtudagur, ágúst 02, 2007
umhugsun - dagur 2
Undanfarið hef ég fundið hvernig ég hef verið að sogast inn í einhverja holu. Holu sem er full af neikvæðri orku. Á góðum degi tek ég eftir því hvað neikvæðni í fari annarra er óþæginleg. Mér líður illa í kringum neikvætt fólk og sé (á þessum góða degi) hvað það hefur slæm áhrif fyrir fólkið sjálft. ´
þar sem ég er búin að heglast í einhverja daga í myrkrinu og með öllu tilheyrandi og ekki liðið vel með það, þá hugsaði ég með mér í gær: "héðan í frá ætla ég bara að hugsa jákvætt"
Ég veit að ég er ennþá reið og ennþá sár, en það kom mér hins vegar á óvart að hausinn minn er uppfullur af neikvæðum hugsunum. Það voru átök fyrir mig að snúa þær niður. það voru svo mikil átök að ég gat ekki farið að hugsa jákvætt um það sem ég hafði verið að hugsa neikvætt um. heldur þurfti ég einfaldlega að finna mér eitthvað annað að hugsa um. Það versta við þetta allt var í rauninni að ég var svo saman herpt að flest sem ég hugsaði um varð neikvætt, sama hversu jákvætt það hafði verið í byrjun.
í dag er hins vegar nýr dagur og ég held áfram þessari jákvæðu og uppbyggjandi vinnu :-)

þriðjudagur, apríl 17, 2007
laugardagur, apríl 14, 2007
Rakvélar
Í gær stóð mér til boða að kaupa 8 rakvélarblöð fyrir 2500 krónur. Þrátt fyrir að vera í svona stelpu eyðslu leiðangri þá fannst mér þetta vera full dýrt og afþakkaði boðið. Afgreiðslukonan var alveg sammála mér og benti mér á að það væri hægt að kaupa svona lítið tæki sem tætti hárin í burtu, það væri svolítið sársaukafullt en margborgaði sig peningalega séð.
Á mínu heimili gengur gengur þetta undir nafninu "tætarinn" og hefur verið í notkun í mörg ár - mig minnir alveg síðan ég fór í kynlífsferðina til London - en það er nú önnur saga.
Ég sagði afgreiðslukonunni að ég ætti svona tætara og sársaukinn vendist alveg ótrúlega fljótt, en það væru bara sumir staðir sem tætarinn fengi ekki að fara á og því þyrfti ég rakvélarblöð líka.
Hún brosti skilningsrík til mín og ég á móti, við vorum systur.
En blöðin ætlaði ég að reyna að fá ódýrari annarsstaðar.
Í næstu verslun fékk ég ekki blöð heldur sambærilega rakvél og ég átti heima með tveimur blöðum, á 1100 krónur. Mér finnst asnalegt að rakvélaframleiðendur búi svo um hnútana að neytandinn sé líklegri til að kaupa nýja rakvél í stað auka blaða.
Ekki nóg með það heldur þegar ég var kominn heim tók það hálftíma að komast í gegnum umbúðirnar - sem að sjálfsögðu fóru beint í ruslið og skaftið líka, því mig vantaði jú bara blöðin en átti ekki 2500 kall.

föstudagur, apríl 13, 2007
Litla lífið það fer hring hring hring...
Einu sinni voru tvær poppstjörnur sem elduðu grátt silfur saman. Önnur þeirra var „góð stelpa“ og þótti líklegri til að ná langt með hæfileikum sínum. Hin var „óþekka stelpan“, hafði mjög umdeildan fatasmekk og ekki talin eins mikil gullstúlka eins og hin, í raun í besta falli brons stúlka. Svo fór sem fór...önnur heitir Witney Huston og hin Madonna
Einhverjum árum seinna voru aðrar poppstjörnur sem elduðu grátt silfur saman. Önnur þeirra var talin fyrirmynd allra ungra stúlkna, hrein mey og allur pakkinn. Hin var afskaplega ódæl, hafði vægast sagt umdeildan fatasmekk og alls ekki talin líkleg til að ná eins langt og meyjan hreina tæra. Svo fór sem fór...önnur heitir Britney Spears og hin Christina Aguilera.
Tilviljun eða fara hlutirnir í hringi? Jahh...maður spyr sig.

sunnudagur, apríl 01, 2007
Við unnum!

Já, verð að segja að það gladdi mitt litla hjarta að heyra að við höfum enn smá vott af skynsemi í sálartetrinu - þó ekki sé nema rétt rúmlega helmingur okkar.
Ekki skemmir fyrri að ég var búin að veðja um fallega, góða rauðvínsflösku...
Nú er bara næsta mál á dagskrá að fara að undirbúa tiltektina eftir að álverið hættir starfsemi sinni í Straumsvík. Kannski maður endi með að búa í Hafnarfirði eftir allt saman? (Svona á gamalsaldri sko - ekki alveg strax)
föstudagur, mars 30, 2007
Táknrænar gjafir
Ég kom heim úr vinnunni í gærkvöldi, alveg úrvinda eftir rúmlega 12 tíma hark. Átti þó ósk heitasta að fá að fara í bað og svo beint í bólið. En það var víst ekki í boði.
1. Ég á ekki baðkar
2. Ég átti eftir að skila skattaskýrslunni.
Þegar litli sambýlismaðurinn var kominn í bólið skellti ég mér á skýrsluna. Þetta átti ekki að vera mikið vandamál og svo sannarlega ekki að taka langan tíma, þar sem ég átti í raun bara eftir að fylla inn ökutækjastyrks blaðið. Þegar því var lokið (á mettíma með aðstoð þess stóra) villuprófaði ég...
þá kom melding um að ég hafi ekki fyllt rétt út hlutafjáraukablaðið mitt!
WHAT! hvaða helv. hlutafjárblað????
Þá mundi ég að ég hafði fengið svona "táknræna" gjöf frá fyrirtækinu mínu um jólin síðustu. Hlut í fyrirtækinu heilir 200 hlutar 29 íkr hver - minns er rík!!!
En ég hef aldrei þurft að gefa áður upp til skatts þetta eina hlutabréf sem ég á í Hlaðvarpanum (fékk það í fermingargjöf frá Boggu)
Ég var eins og áður sagði orðin úrvinda af þreytu og við þær aðstæður verð ég sjónlausari en gengur og gerist og að sjálfsögðu fullkomlega heiladauð.
Til að gera langa sögu stutta, ákvað ég að skila skattaskýrslunni ekki og lifa bara af hlutafjárarðinum mínum (er það ekki annars kallað það?)

þriðjudagur, mars 27, 2007
Sófar og sjálfstæði
ég heyrði í manni í dag:
- í dag eyddi ég hundraðþúsund kalli. Ég fór í Rúmfatalagerinn og settist þar í sófa. Ég keypti um daginn svona gluggatjöld og sófinn var alveg eins á litinn og ég bara skellti mér á hann. Hann er svona tveggja sæta og með skammeli sem er auðvelt að fá upp og auðvelt að loka aftur.
Svo sagði ég mig úr Sjálfstæðisflokknum. Gerði mér ferð í Valhöll og sagði mig formlega úr flokknum. Ég er búin að vera í honum síðan 1955.
Ég velti því fyrir mér hvaða flokk hann kjósi þá í staðinn, en kunni ekki við að spyrja enda var hann ekki beint að segja mér þessar fréttir.

fimmtudagur, mars 22, 2007
Nærföt á Íslandi
Ég veit að sumir segja að það megi ekki gera grín að minni máttar eða þeim sem manni finnst vera minni máttar, eða þeim sem eru öðruvísi en maður sjálfur er...
en mamma mín er þroskaþjálfi og hún hefur oft sagt mér skemmtisögur af fólki sem er í kringum hana...
Fékk neðangreindan tölvupóst um daginn og link inn á þessa síðu
mér finnst hún stórskemmtileg...
Nytt Net Verslun Loksins Kómin ......
Með Franska Undirfattnaður Sokkabuxur og Sundföt
Öll okkar Vörur eru islensk Hönnun.
Takið eftir að franski undirfatnaðurinn er íslensk hönnun. Við Íslendingar erum greinilega að ná fullum yfirráðum í heiminum.

föstudagur, mars 16, 2007
tiska
Af hverju getur ekki bara verið í tísku að vera með náttúrulegar augabrúnir?
Þetta vex alveg óþolandi hratt...
Er annars að fara í jaxlatöku á eftir. Þegar konan sem ég var með á fundi í gær fór í slíka töku, þá kjálkabraut tannlæknirinn hana...
Ég er svaka spennt...

fimmtudagur, mars 15, 2007
Af fjölda játningum...
Maður spyr sig hvort þetta sé kannski aðeins of hentugt? Ég meina er ekki líka hægt að fá manninn til að játa að hafa drepið JFK og kannski líka Geirfinn úr því við erum byrjuð á þessu?
Er annars að velta fyrir fatatískunni þarna í Guantanamo fangelsi...að vera í bol utan yfir ullarpeysu, er það málið þarna? Ég sem hélt að það væri svo heitt á þessum slóðum....

Khalid Sheikh Mohammed, sá er sakaður hefur verið um að skipuleggja árásirnar 11. september 2001 viðurkenndi allar sakir í yfirheyrslum í Guantanamo-búðunum um helgina.
Samkvæmt endurriti af yfirheyrslunum sem CIA, leyniþjónusta Bandaríkjanna hefur gefið út viðurkennir Mohammed að hafa skipulagt árásirnar á Tvíburaturnana og Pentagon auk þess sem hann sagðist hafa skipulagt árásir á Big Ben og Heathrow flugvöllinn í London.
Hann viðurkennir einnig að hafa skipulagt sprengjuárás í kjallara World Trade Center árið 1993 og að hafa ætlað að ráða Bill Clinton fyrrverandi forseta og Jóhannes Pál annan fyrrverandi páfa af dögum. Yfirheyrslurnar voru haldnar fyrir luktum dyrum og var engum utanaðkomandi leyft að fylgjast með.
Endurritið er þýtt úr arabísku og ritskoðað af Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna að sögn til að upplýsa ekki um mikilvæg leynigögn. Þetta er í fyrsta sinn sem réttað er yfir Mohammed síðan hann var handtekinn í Pakistan fyrir fjórum árum.
Yfirheyrslurnar hafa verið harðlega gagnrýndar af mannréttindasamtökum og því haldið fram að ekki sé möguleiki fyrir sakborninginn að þær verði sanngjarnar þar sem verjandi hans er bandarískur herlögmaður.
Þessar yfirheyrslur hafa enga eiginlega lagalega þýðingu aðra en þá að játningarnar sem fram komu geta leitt til þess að réttað verði yfir Mohammed í herrétti.
Tekið af visir.is

mánudagur, mars 12, 2007
fimmtudagur, mars 08, 2007
Tiörur
Í fávisku minni hélt ég að fyrst og fremst stelpur væru með kórónur, en nei...
Spurning hvernig ég á að velja?
Alltaf flottur
What?
Svolítið Hólmfríður Karlsdóttir, en hún er jú alvöru prinsessa
hálf daufleg þessi

Promprinsessan
það er árshátíð í vinnunni minni á laugardaginn. Mér finnst ég vera hálf lömuð, ekki búin að ákveða í hverju ég á að fara, fer ekki í klippingu, ekki í förðun og ekki greiðslu og ekki í ljós. Kannski kaupi ég mér samt sokkabuxur á leiðinni í fordrykkinn?
Hef stundum velt því fyrir mér hvað ég er klofin: ég er alveg ótrúlega félagslynd, finnst gaman að gera skemmtilega hluti, elska að tala og að á mig sé hlustað.
En á sama tíma þoli ég ekki að vera í mannmergð, þoli illa svona félagsmálabrölt og finnst gott að vera fluga á vegg eða heima að lesa.
Var á stórri stórri samkomu um síðustu helgi og men hvað mér fannst það ekki vera fyrir mig. Ég horfði bara á allt þetta fólk og fannst ég vera svo voðalega lítil og ósýnileg (sem ég sjálfsagt var) það var samt allt í lagi því ég var edrú og sá alla hina verða kjánalega og fór þá heim.
En aftur að árshátíðinni: það er svona prom þema og ég á ekki promkjól en eldri ambýlismaðurinn minn á pífuskyrtu í bílskúrnum hjá mömmu sinni. Ég held samt að hann ætli ekki í henni.
Mig langar í kórónu. Ég er eiginlega viss um að ég enda í einhverju sem er ekki alveg promlegt og á því kannski ekki mikla möguleika á því að verða valin promdrottning kvöldsins og því fæ ég líklegast ekki kórónuna, þannig að ég er að spá í að fara í skranhúsið og kaupa mér kórónu - þá er eiginlega alveg sama í hverju ég er og skiptir engu máli hvort ég hafi farið í hárgreiðslu eða ekki!

miðvikudagur, mars 07, 2007
Tannsýki
Ég er með sýki, tannsýki í tuttuguára jaxlinum mínum. Ég er eins og ég sé með kirsuberjatómat í vinstri kinninniog get lítið opnað munninn. Ég fer í tanntöku eftir rúma viku, veit að það er ekki mjög gott en mikið hlakka ég samt til. Ef ég fæ að eiga jaxlinn ætla ég að setja hann undir koddann og koma fyrir falinni myndavél í þeirri von að ná mynd af tannálfinum. Sem er, ef mark er takandi á þessum Disney myndum sem ég hef séð í gegnum tíðina, afskaplega skrautlegur og skemmtilegur karakter.

Svo er ég líka með kvef, en það er nú allt í lagi.

mánudagur, mars 05, 2007
af ikear ferðum
Ég dró eldri sambýlismann minn með mér í IKEAr í gær. Fyrst spurði ég hann og hann sagði nei og sá svo að sér en þá ætlaði ég svo sannarlega ekki að leyfa honum að koma með mér en sá svo að mér...sem betur fer.
Það var verið að snurfusa í unglingaherbergninu og keyptir fleiri fleiri flatir kassar af húsgögnum og öðru slíku. Ég var mjög þakklát fyrir að hafa einhvern til að diskútera við þó mér hafi fundist hann stundum hafa haft full sterkar skoðanir á hlutunum.
Heill gámur af drasli og dóti og því var hlaðið á vagninn, og rennt í gegnum skannann hjá stráknum á kassanum og svo út og þá var bara allt stopp.
Af hverju var enginn búin að segja mér að það væri sólpafangelsi fyrir utan útgöngudyrnar hjá IKEAr?
Ég þurfti að hýrast í kulda og strekkingi á meðan eldri sambýlismaðurinn arkaði hálftíma yfir í hinn enda bílastæðisins, þar sem bíllinn var. Við nefninglega megum ekki taka kerrurnar út á bílastæðið!
Hvað á maður að gera ef maður fer einn að kaupa sér dót? Skella því á bakið?
Hvað er málið? Er bílastæðið það stórt og kerrubörnin svo ung að þau mega ekki fara svona langt frá húsinu til að sækja kerrurnar?
Eða er kerruþjófur í Garðabænum?
Ég er svo illa gefin að ég bara skil þetta alls ekki...

þriðjudagur, febrúar 27, 2007
Jahérna...
Ókey, þetta er vísbendingaspurning.
Spurt er um 12 mánaða tímabil í Íslandssögunni.
Ef svarað er rétt eftir fyrstu vísbendingu fást 3 stig, 2 fyrir næstu og eitt fyrir síðustu.
Um hvaða tímabil er spurt?
1. vísbending:
Íslendingar eignast alheimsfegurðardrottningu.
Íslendingar stunda hvalveiðar.
Launamunur kynjanna er um 15%.
Sykurmolar halda tónleika.
Vextir á Íslandi eru miklu mun hærri en í nágrannalöndunum.
Jón Páll Sigmarsson er mikið í umræðunni.
(3 stig)
2. vísbending:
Duran Duran skekur landann.
Stóriðja er stefna stjórnvalda.
Dagur Vonar er sýnt hjá Leikfélagi Reykjavíkur.
Karlkyns stjórnmálamenn tala opinberlega á niðurlægjandi hátt um konur.
Bubbi Mortens er kóngurinn.
Alvarlegur fjárhagsvandi steðjar að Kvennaathvarfinu í Reykjavík.
(2 stig)
3. vísbending:
Ár eru virkjaðar og náttúrperlum sökkt til að skapa orku fyrir stóriðju.
Hlutfall kvenna í nefndum á vegum Alþingis er skammarlega lágt.
Landslið Íslands stendur sig vel á alþjóðlegu stórmóti.
Forsætisráðherra og borgarstjóri eru karlmenn.
Eiríkur Hauksson keppir fyrir Íslands hönd í Eurovision.
Matarverð á Íslandi er stórkostlega mikið hærra en í viðmiðunarlöndunum.
Mikil umræða er um sifjaspell og ábyrgð dómstóla vegna kynferðisafbrotamála.
(1 stig)
Nú hafa glöggir keppendur kannski áttað sig á því að rétt svör eru tvö: nefnilega árin 1986/7 og 2006/7. Já, lítið hefur breyst og annað fer í hringi.
eftir Sólveigu Arnarsdóttur

mánudagur, febrúar 26, 2007
Alveg magnað...
Fyrst birt: 26.02.2007 09:54
Síðast uppfært: 26.02.2007 09:57
Kona braust inn til nágranna síns
Kona var handtekin í fjölbýlishúsi í efra Breiðholti í nótt. Hún hafði brotist inn í íbúð nágranna síns sem dvelur á sjúkrastofnun. Konan hafði sótt þangað nokkur málverk og ýmis húsgögn sem hún hafði komið fyrir í eigin íbúð.
Nágrannar urðu varir við þessa flutninga og létu lögreglu vita. Konan, sem var í mjög annarlegu ástandi, er nú í haldi lögreglunnar.
(tekið af ruv.is)

laugardagur, febrúar 24, 2007
Af fjöldamorðingjum
Ég var í smá vandræðum með að skilja fjöldamorðingjann svona eftir galeinan í íbúðinni. Hann var svosem ekkert krimmalegri en aðrir menn sem hafa komið í íbúðina en það var eitthvað... það kæmi mér ekki á óvart að ef ég hefði beðið eftir honum eða jafnvel boðið honum upp á kaffi, þá hefði ég fengið að heyra einhverjar hressandi kristianíusögur eða sögur af því þegar hann fékk tremmann í verbúðinni þarna um árið.
Ég ákvað að treysta og sýnist hann reyndar ekki hafa tekið neitt. En ég veit náttúrulega ekkert hvað hann gerði á meðan hann var einn í íbúðinni minni. Kannski gekk hann um með eiturbrúsann í bleiku blúndu brókinni minni? og hálfur í grænu skónum með bláu saumunum? Hvað veit maður svosem?
fjöldamorðingi í kaffipásu
Jahh eitt veit ég amk: Hann tók ekki til í sokkaskúffunni minni og hann braut ekki saman þvottinn - sem hann hefði mín vegna alveg mátt gera.
Ég ákvað að treysta og sýnist hann reyndar ekki hafa tekið neitt. En ég veit náttúrulega ekkert hvað hann gerði á meðan hann var einn í íbúðinni minni. Kannski gekk hann um með eiturbrúsann í bleiku blúndu brókinni minni? og hálfur í grænu skónum með bláu saumunum? Hvað veit maður svosem?
fjöldamorðingi í kaffipásuJahh eitt veit ég amk: Hann tók ekki til í sokkaskúffunni minni og hann braut ekki saman þvottinn - sem hann hefði mín vegna alveg mátt gera.
fimmtudagur, febrúar 22, 2007
Auðkennislykill - öfgaöryggi

Ég hef akkúrat enga þolinmæði fyrir þessum auðkennislykli. Ég er búin að fá tvo senda heim, einn fyrir mig persónulega og einn fyrir húsfélagið (er húsvörður). það er þó nokkuð langt síðan ég þurfti að virkja húsfélagslykilinn en hitt átti ekki að fara í gang fyrr en næstu mánaðramót - HÉLT ÉG -
þegar ég ætlaði inn á heimabankann minn í gær til að telja milljónirnar mínar, þá var það allt í einu ekki hægt nema ég væri með auðkennislykil við hendina.
Sem ég var ekki - því ég var í vinnunni.
Vegna þess hvað ég er ótrúlega yfirveguð og þolinmóð þá andaði ég inn og út og ákvað að sinna þessum málum þegar ég kæmi heim.
Það tók mig tæpan klukkutíma og tvö símtöl í þjónustuver bankans.
þegar upp er staðið má ég bara vera með einn lykil og konan í símanum var eiginlega viss um að ég hefði stolið lykli númer tvö og sagði að ég þyrfti að skila honum.
Ég sagði henni að ég væri búin að merkja hann með kennitölu, lykilorði og nafni...
...svo kemur nótt og nýr dagur og enn ætla ég að fara í heimabankann...
en get það ekki af því að ég er ekki búin að virkja sms varaleiðina...
ég er alveg að tapa glórunni yfir þessu..og ég ætla EKKI að fara að nota þennan hlunk sem lyklakippu, no way in hell...
En þetta er líklegast besta öryggið sem völ er á: ekki einu sinni eigendur komast inn á heimabankann sinn.
Svona eins og pillan sem er 99.9% örugg og mann langar ekki til að stunda kynlíf þegar maður er með þessa hormóna í æðunum..og verður þ.a.l. ekki óléttur...
miðvikudagur, febrúar 21, 2007
Er munur?
Ég heyrði í nokkrum mönnum um daginn. Þeir voru að tala um hvað einn tiltekin manneskja í fyrirtæki væri illa að sér og hvað vera hennar þar þjónaði litlum tilgangi fyrir fyrirtækið. Þegar þeir voru spurðir hvernig hefði verið tekið í það þegar þeir kvörtuðu undan henni, sögðu þeir að þeir hefðu ekki gert það bara snúið sér til annars aðila. Það hefði ekkert upp á sig að vera að kvarta undan henni, þegar þeir gætu hringt í einhvern annan í fyrirtækinu.
Ég velti fyrir mér hvernig konur hefðu tekið á þessu máli?

föstudagur, febrúar 16, 2007
Í tilefni dagsins...
Don't you wish there was a knob on the TV to turn up the intelligence?
There's one marked "Brightness" but it doesn't work
- Gallagher

Framundan er..
Ég er að fara upp í sumarbústað á eftir. Ég ætla að taka með mér sundföt og gönguskó og hvítvín og kaffi og bók og singstar. Mér skilst reyndar að við þurfum að taka með okkur viskustykki líka, það hlýtur að finnast pláss fyrir eitt svoleiðs.
Stóri sambýlismaðurinn minn setti upp viftu inná bað í gær, veit ekki ennþá hvað hún gerir mikið gagn en eitthvað gagn hlýtur hún að gera. Veit samt ekki alveg hvort ég þori að mála rörin, kannski drepur hún silfurskotturnar úr hræðslu?
Ef ekki þá á ég alltaf von á fjöldamorðingjanum í heimsókn eftir helgi...

fimmtudagur, febrúar 15, 2007
Af heimilisverkum...
Sigmarssonur er búinn að vera við annan mann í tvo daga að gera það sem hann gerir best: að setja upp rör og vera með vesen. Nei, kannski er ekki hægt að segja að hann hafi verið með vesen en ég á í.þ.m. fullt af nýjum rörum og það finnst mér vera vesen, þar sem þau liggja flest utan á veggjunum og svo safna einhver þeirra dropum á sig þegar fjölskyldan fer í sturtu. Ég er alveg á fullu að reyna að láta þetta ekki fara með mig, en ég þarf að hafa mig alla við. Veit ekki hver niðurstaðan verður, en ég geri ráð fyrir að það þurfi að setja upp einhverskonar viftu inn á baðið. Well...

Fljótlega eftir að ég flutti í þessa íbúð (fyrir 7 árum) þá komst ég að því að það væru silfurskottur í íbúðinni. Ég er búin að vera á leiðinni að hringja í meindýraeyði en dró það alltaf á langinn, þar sem ég var viss um að það væri rándýrt að fá svoleiðis mann í heimsókn (kannski svona 30-50 þúsund) og að ég þyrfti að flytja út í viku og sótthreinsa allt eftir að hann væri búinn að vera þarna og svo framvegis og svo framvegis... í einhverju framtakssemisæðiskasti þá hringdi ég svo um daginn. Það kostar á bilinu 8-12 þúsund að fá svona mann í heimsókn, fer eftir stærð íbúðar (semsagt nær 8 þúsund) aðgerðin tekur klukkustund og má ekki fara inn í íbúðina í fjóra tíma á eftir. Og þeir koma í byrjun næstu viku og málið er dautt og silfurskotturnar líka.

miðvikudagur, febrúar 14, 2007
Móðir náttúra
Notið þið örbylgjuofn til að hita upp matinn ykkar?
Ég verða að segja að stundum finnst mér "skyndi" vera í lagi..en ekki við svona tækifæri..þetta er skelfilegt!

mánudagur, febrúar 12, 2007
Áhugavert?
Fékk rétt í þessu þennan áhugaverða póst, hef það á tilfinningunni að ég sé að missa af tækifæri lífs míns, en skil samt ekki alveg hvernig ég á að snúa mér í þessu...
Good day
Todays market is going on and we have some fresh news for you:
MHII at OBB
Last: 0.02
(hvad fornoget?)
We know that you have an interest in fresh and current information only.The results of your and our work depends on truthful information and live data. That is why we offer you only online news which is represent the facts.
MHII is on vantage point now and the comapny is about to increase their positions.
Don't lose time. It's better period to act now.
Call your broker now.
c8sds9nifyhvurb55fz6kw5gzxqq3po7
7277667A456671756E667069776C717A3378
S3NL2E07BR5AK3X68PUKZ1W3L0T4T4F

Ástin
Mér hefur alltaf fundist ástin svolítið erfið. Eina ástin sem hefur ekki valdið mér vandræðum er móðurástin. Hún er svo skilyrðislaus og hrein. Ég velti því fyrir mér af hverju ég geti ekki elskað aðra en son minn skilyrðislaust. Af hverju geri ég endalausar kröfur – hvort sem þær eru raunhæfar eða óraunhæfar – til annarra sem ég elska?
Velti því líka fyrir mér hvort það sé ég eða hvort það séu hinir?
Sumir segja að það sé best að geta lifað án þess að vera með væntingar til annarra því þá verði maður svo þakklátur og hamingjusamur með brauðmolana sem maður fær (eða eitthvað í þá áttina). Stundum hefur mér fundist þetta vera rétta leiðin en stundum hef ég litið á þetta sem uppgjöf. Fundist eins og ég sé að bakka með eitthvað sem er partur af lífsgildum mínum þar með partur af mér.
Kannski er þetta bara þannig að ég á svo erfitt með að láta af gömlum vana. Ég man t.d. eftir því áður en ég hætti að reykja í fyrsta skiptið, þá sá ég fram á það að þurfa að lifa í algjörri félagslegri einangrun það sem eftir lifði ævi minnar, því reykingar voru svo sterkur partur af félagslífi mínu að þær voru eiginlega bara ég í félagslífi. En það er nú liðin tíð...