Af fjölda játningum...
Maður spyr sig hvort þetta sé kannski aðeins of hentugt? Ég meina er ekki líka hægt að fá manninn til að játa að hafa drepið JFK og kannski líka Geirfinn úr því við erum byrjuð á þessu?
Er annars að velta fyrir fatatískunni þarna í Guantanamo fangelsi...að vera í bol utan yfir ullarpeysu, er það málið þarna? Ég sem hélt að það væri svo heitt á þessum slóðum....

Khalid Sheikh Mohammed, sá er sakaður hefur verið um að skipuleggja árásirnar 11. september 2001 viðurkenndi allar sakir í yfirheyrslum í Guantanamo-búðunum um helgina.
Samkvæmt endurriti af yfirheyrslunum sem CIA, leyniþjónusta Bandaríkjanna hefur gefið út viðurkennir Mohammed að hafa skipulagt árásirnar á Tvíburaturnana og Pentagon auk þess sem hann sagðist hafa skipulagt árásir á Big Ben og Heathrow flugvöllinn í London.
Hann viðurkennir einnig að hafa skipulagt sprengjuárás í kjallara World Trade Center árið 1993 og að hafa ætlað að ráða Bill Clinton fyrrverandi forseta og Jóhannes Pál annan fyrrverandi páfa af dögum. Yfirheyrslurnar voru haldnar fyrir luktum dyrum og var engum utanaðkomandi leyft að fylgjast með.
Endurritið er þýtt úr arabísku og ritskoðað af Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna að sögn til að upplýsa ekki um mikilvæg leynigögn. Þetta er í fyrsta sinn sem réttað er yfir Mohammed síðan hann var handtekinn í Pakistan fyrir fjórum árum.
Yfirheyrslurnar hafa verið harðlega gagnrýndar af mannréttindasamtökum og því haldið fram að ekki sé möguleiki fyrir sakborninginn að þær verði sanngjarnar þar sem verjandi hans er bandarískur herlögmaður.
Þessar yfirheyrslur hafa enga eiginlega lagalega þýðingu aðra en þá að játningarnar sem fram komu geta leitt til þess að réttað verði yfir Mohammed í herrétti.
Tekið af visir.is

<< Home