Sófar og sjálfstæði
ég heyrði í manni í dag:
- í dag eyddi ég hundraðþúsund kalli. Ég fór í Rúmfatalagerinn og settist þar í sófa. Ég keypti um daginn svona gluggatjöld og sófinn var alveg eins á litinn og ég bara skellti mér á hann. Hann er svona tveggja sæta og með skammeli sem er auðvelt að fá upp og auðvelt að loka aftur.
Svo sagði ég mig úr Sjálfstæðisflokknum. Gerði mér ferð í Valhöll og sagði mig formlega úr flokknum. Ég er búin að vera í honum síðan 1955.
Ég velti því fyrir mér hvaða flokk hann kjósi þá í staðinn, en kunni ekki við að spyrja enda var hann ekki beint að segja mér þessar fréttir.

<< Home