föstudagur, mars 30, 2007

Táknrænar gjafir

Ég kom heim úr vinnunni í gærkvöldi, alveg úrvinda eftir rúmlega 12 tíma hark. Átti þó ósk heitasta að fá að fara í bað og svo beint í bólið. En það var víst ekki í boði.
1. Ég á ekki baðkar
2. Ég átti eftir að skila skattaskýrslunni.

Þegar litli sambýlismaðurinn var kominn í bólið skellti ég mér á skýrsluna. Þetta átti ekki að vera mikið vandamál og svo sannarlega ekki að taka langan tíma, þar sem ég átti í raun bara eftir að fylla inn ökutækjastyrks blaðið. Þegar því var lokið (á mettíma með aðstoð þess stóra) villuprófaði ég...

þá kom melding um að ég hafi ekki fyllt rétt út hlutafjáraukablaðið mitt!
WHAT! hvaða helv. hlutafjárblað????
Þá mundi ég að ég hafði fengið svona "táknræna" gjöf frá fyrirtækinu mínu um jólin síðustu. Hlut í fyrirtækinu heilir 200 hlutar 29 íkr hver - minns er rík!!!
En ég hef aldrei þurft að gefa áður upp til skatts þetta eina hlutabréf sem ég á í Hlaðvarpanum (fékk það í fermingargjöf frá Boggu)

Ég var eins og áður sagði orðin úrvinda af þreytu og við þær aðstæður verð ég sjónlausari en gengur og gerist og að sjálfsögðu fullkomlega heiladauð.
Til að gera langa sögu stutta, ákvað ég að skila skattaskýrslunni ekki og lifa bara af hlutafjárarðinum mínum (er það ekki annars kallað það?)