Rakvélar
Í gær stóð mér til boða að kaupa 8 rakvélarblöð fyrir 2500 krónur. Þrátt fyrir að vera í svona stelpu eyðslu leiðangri þá fannst mér þetta vera full dýrt og afþakkaði boðið. Afgreiðslukonan var alveg sammála mér og benti mér á að það væri hægt að kaupa svona lítið tæki sem tætti hárin í burtu, það væri svolítið sársaukafullt en margborgaði sig peningalega séð.
Á mínu heimili gengur gengur þetta undir nafninu "tætarinn" og hefur verið í notkun í mörg ár - mig minnir alveg síðan ég fór í kynlífsferðina til London - en það er nú önnur saga.
Ég sagði afgreiðslukonunni að ég ætti svona tætara og sársaukinn vendist alveg ótrúlega fljótt, en það væru bara sumir staðir sem tætarinn fengi ekki að fara á og því þyrfti ég rakvélarblöð líka.
Hún brosti skilningsrík til mín og ég á móti, við vorum systur.
En blöðin ætlaði ég að reyna að fá ódýrari annarsstaðar.
Í næstu verslun fékk ég ekki blöð heldur sambærilega rakvél og ég átti heima með tveimur blöðum, á 1100 krónur. Mér finnst asnalegt að rakvélaframleiðendur búi svo um hnútana að neytandinn sé líklegri til að kaupa nýja rakvél í stað auka blaða.
Ekki nóg með það heldur þegar ég var kominn heim tók það hálftíma að komast í gegnum umbúðirnar - sem að sjálfsögðu fóru beint í ruslið og skaftið líka, því mig vantaði jú bara blöðin en átti ekki 2500 kall.

<< Home