sunnudagur, apríl 01, 2007

Við unnum!



Já, verð að segja að það gladdi mitt litla hjarta að heyra að við höfum enn smá vott af skynsemi í sálartetrinu - þó ekki sé nema rétt rúmlega helmingur okkar.

Ekki skemmir fyrri að ég var búin að veðja um fallega, góða rauðvínsflösku...

Nú er bara næsta mál á dagskrá að fara að undirbúa tiltektina eftir að álverið hættir starfsemi sinni í Straumsvík. Kannski maður endi með að búa í Hafnarfirði eftir allt saman? (Svona á gamalsaldri sko - ekki alveg strax)