umhugsun - dagur 2
Undanfarið hef ég fundið hvernig ég hef verið að sogast inn í einhverja holu. Holu sem er full af neikvæðri orku. Á góðum degi tek ég eftir því hvað neikvæðni í fari annarra er óþæginleg. Mér líður illa í kringum neikvætt fólk og sé (á þessum góða degi) hvað það hefur slæm áhrif fyrir fólkið sjálft. ´
þar sem ég er búin að heglast í einhverja daga í myrkrinu og með öllu tilheyrandi og ekki liðið vel með það, þá hugsaði ég með mér í gær: "héðan í frá ætla ég bara að hugsa jákvætt"
Ég veit að ég er ennþá reið og ennþá sár, en það kom mér hins vegar á óvart að hausinn minn er uppfullur af neikvæðum hugsunum. Það voru átök fyrir mig að snúa þær niður. það voru svo mikil átök að ég gat ekki farið að hugsa jákvætt um það sem ég hafði verið að hugsa neikvætt um. heldur þurfti ég einfaldlega að finna mér eitthvað annað að hugsa um. Það versta við þetta allt var í rauninni að ég var svo saman herpt að flest sem ég hugsaði um varð neikvætt, sama hversu jákvætt það hafði verið í byrjun.
í dag er hins vegar nýr dagur og ég held áfram þessari jákvæðu og uppbyggjandi vinnu :-)

<< Home